| Árni Björnsson | |||||||||
| Árni Björnsson var fæddur að Lóni í Kelduhverfi 23. desember 1905. Hann lærði nótnalestur hjá Kristjáni Sigtryggssyni bókbindara á Húsavík og á harmóníum hjá Sigurgeiri Jónssyni á Akureyri. Var við tónlistarnám hjá Páli Ísólfssyni 1928-29 og síðan einn af fyrstu nemendum Tónlistarskólans í Reykjavík og lauk þaðan burtfararprófi í píanóleik 1935 og í tónfræðum ári síðar. Hann var um tíma nemandi þeirra Franz Mixa og síðar Victors Urbancic. Árni fór til Englands 1944 og lauk burtfararprófi í flautuleik frá Royal Manchester College of Music 1946, en kenndi síðan píanó- og flautuleik við Tónlistarskólann í Reykjavík. Eftir Árna liggja fjölmargar tónsmíðar af ýmsu tagi og er hann heiðursfélagi í Tónskáldafélaginu. Árni Björnsson lést árið 1995. |
|||||||||
![]() |
|||||||||
|
|
|||||||||
| Á bænum stendur stúlkan vörð / Indriði Einarsson Ein sit ég úti á steini / Indriði Einarsson Einbúinn / Jónas Hallgrímsson Eiríkur á einum fæti / Ólafur Jónsson Fjöllin blá / Ólafur Jónsson Heiðaþokan (Vefaradans) / Ókunnur höfundur Horfinn dagur / Sigurður B. Gröndal Hver á sér fegra föðurland / Hulda Hvítu seglin / Ólafur Jónsson Í dögun / Jón Þórðarson La Belle / Jónas Hallgrímsson Leiðsla / Grímur Thomsen Live with me / Marlowe, Christopher og Raleigh, W Morgunn / Kristján Jónsson Nótt / Benedikt Gröndal |
|||||||||
| Nú er sól og vor / Jakob Jóh. Smári Og andinn mig hreif / Matthías Jochumsson Rökkurljóð / Ólafur Jóhann Sigurðsson Síðasta sjóferðin / Guðmundur Daníelsson Skáldið er þagnað / Sigurður B. Gröndal Sólroðin ský / Ólafur Jónsson Syng, frjálsa land / Hulda Vefaradans, Heiðaþokan / Ókunnur höfundur Við dagsetur / Jón Þórðarson Víkingar / Maríus Ólafsson ? Vorvísa / Jónas Hallgrímsson Vögguvísa / Óskar Kjartansson Þegar blómin sofa / Sigfús Elíasson Þú biður mig að syngja / Sigurður B. Gröndal Þú hryggir mig, gleði / Sigurður B. Gröndal |
|||||||||