| Árni Thorsteinson | |||||||||
![]() |
|||||||||
| Árni Thorsteinson fæddist í Reykjavík 1870. Að loknu stúdentsprófi 1890 fór Árni til náms við háskólann í Kaupmannahöfn og hugðist leggja stund á lögfræði. En tónlistin átti hug hans allan og varð lítið úr lögfræðináminu. 1897 lauk hann námi í ljósmyndagerð í Kaupmannahöfn og stundaði þá iðn í síðan í Reykjavík til 1916. Jafnframt var hann um skeið umboðsmaður fyrir danskt tryggingafélag. Hann starfaði hjá Sjóvátryggingafélagi Íslands 1919-29 og síðan í Landsbanka Íslands til 1941, er hann lét af störfum fyrir aldurs sakir. Árni varð snemma þjóðkunnur fyrir sönglög sín. Hann lét eftir sig mikinn fjölda laga, allt sönglög ýmist samin fyrir einsöngvara eða kóra. Hann var sjálfmenntaður í tónlist, en mjög listfengur og frábærlega smekkvís. Hann lést 1962. | |||||||||
|
|
|||||||||
| Áfram / Hannes Hafstein Dalvísur / Jónas Hallgrímsson Dauðinn ríður / Einar H. Kvaran Draumur hjarðsveinsins / Steingrímur Thorsteinsson Fallin er frá, fegursta rósin / Guð. Guðmundsson Friður á jörðu / Guðmundur Guðmundsson Fögur sem forðum / Guðmundur Guðmundsson Gleði / Hannes Hafstein Gúttar á Gamlárskvöld (1902) / Ókunnur höfundur Í skóginum / Hannes Hafstein ÍR söngur / Freysteinn Gunnarsson Ísland vort land / Árni Thorsteinson Kirkjuhvoll / Guðmundur Guðmundsson Kveldriður á galdraöldinni / Grímur Thomsen Kvöldklukkan / Steingrímur Thorsteinsson Landið mitt / Einar H. Kvaran |
Meðal / Hannes Hafstein Nafnið / Steingrímur Thorsteinsson Nótt (Nú ríkir kyrrð) / Magnús Gíslason Rósin / Guðmundur Guðmundsson Sólarlag (Sól, stattu kyrr) / Sigurður Sigurðsson Sólkveðja / Steingrímur Thorsteinsson Sólskinsskúrin / Steingrímur Thorsteinsson Söngkonan / Hannes Hafstein Söngur víkinganna / Gísli Brynjólfsson Taflið / Einar H. Kvaran Tí, tí / Steingrímur Thorsteinsson Tröllasöngur úr Bárðarsögu / forn vísa Valagilsá / Hannes Hafstein Vísur á sjó / Hannes Hafstein Vorgyðjan kemur / Guðmundur Guðmundsson Þar sem háir hólar / Hannes Hafstein Þess bera menn sár / Hannes Hafstein þýddi Örninn / Þorsteinn Gíslason |
||||||||