Bjarni Böðvarsson
Bjarni Böðvarsson var fæddur í Skildinganesi við Reykjavík 21. nóvember 1900, ólst upp hjá foreldrum sínum á Hrafnseyri við Arnarfjörð, en fluttist 15 ára til Reykjavíkur. Vann þar fyrst við almenn verslunarstörf og bifreiðastjórn. Bjarni lærði að leika á harmóníum hjá Sigfúsi Einarssyni og Sigurði Þórðarsyni og síðar hljómfræði hjá Emil Thoroddsen og Hallgrími Helgasyni. Bjarni hóf að leika á skemmtistöðum og kaffihúsum 1918 og vann eftir það óslitið að tónlistarflutningi. Hann var ráðinn sem kontrabassaleikari við Útvarpið 1932. Síðar lék hann einnig í Sinfóníuhljómssveit Íslands. Bjarni stjórnaði um árabil vinsælustu danshljómsveit landsins og var fyrsti formaður Félags íslenskra hljóðfæraleikara. Bjarni lést 1955.

Amma kvað / Magnús Stefánsson (Örn Arnarson)
Blunda rótt / Ágúst Böðvarsson
Dunar í trjálundi / Jónas Hallgrímsson
Kveld / Hannes Hafstein
Lofsöngur / Matthías Jochumsson
Margt er það í steininum / Jónas Hallgrímsson þýddi
Snemma lóan litla í / Jónas Hallgrímsson