Bjarni Þorsteinsson
Bjarni Þorsteinsson fæddist í Hraunhreppi á Mýrum 1861. Hann lauk embættisprófi frá Prestaskólanum 1888. Á námsárunum var hann bæjar-fógetaskrifari í Reykjavík, stundakennari við Latínuskólann og sýsluskrifari í Vatnsdal. Bjarni gerðist sóknarprestur í Hvanneyrar-prestakalli í Siglufirði 1888 og gegndi því embætti allt til 1935. Hann lærði lítilsháttar tónfræði hjá Jónasi Helgasyni og harmóníumleik hjá frú Önnu Petersen. Bjarni var braut-ryðjandi í íslensku tónlistarlífi. Hann samdi fjölda alkunnra laga og hafði með messusöngvum sínum mikil áhrif á söngmennt í kirkjum landsins. Stærsta minnisvarða reisti hann sér þó með þjóðlagasafni sínu sem kom út á árunum 1906-09 með styrk úr Landssjóði og Carlsberg-sjóðnum danska. Bjarni gegndi fjölda trúnaðarstarfa í sókn sinni og var sæmdur prófessorsnafnbót fyrir afrek sín. Hann lést árið 1938.

Agnar Stefán Klemensson / Matthías Jochumsson
Brennið þið, vitar / Davíð Stefánsson
Draumalandið / Guðmundur Magnúson
Einhuga fram / Guðmundur Guðmundsson
Fyr var landið / Davíð Stefánsson
Gissur ríður góðum fáki / Indriði Einarsson
Hann hraustur var sem dauðinn / Indriði Einarsson
Húsavík við Skjálfanda / Hulda
Í djúpið, í djúpið mig langar / Páll J. Árdal
Íslands fáni / Guðmundur Guðmundsson
Kirkjuhvoll / Guðmundur Guðmundsson
Kvöldljóð / Hulda
Landið góða / Hannes Hafstein
Mér bárust ómar / Hannes Jónasson
Morgunstundir í skógi / Jón Ólafsson
Rís, Íslands fáni / Davíð Stefánsson
Sjá dagar koma / Davíð Stefánsson
Sólsetursljóð (dúett) / Guðmundur Guðmundsson
Svanasöngur Heiðbláinnar / Indriði Einarsson
Systkinin / Einar H. Kvaran
Söngurinn / Matthías Jochumsson
Taktu sorg mína / Guðmundur Guðmundsson
Ung er vor gleði / Einar Benediksson
Útfararljóð / Indriði Þorkelsson
Vakið, vakið! / Davíð Stefánsson
Vakir vor í bæ / Hannes Hafstein
Við erum þjóð / Davíð Stefánsson
Við, börn þín Ísland / Davíð Stefánsson
Vor og haust / Páll J. Árdal
Vornótt (Við nemum ei staðar) / Einar H. Kvaran
Þess bera menn sár / Hannes Hafstein þýddi