| Björgvin Guðmundsson | ||||||||
![]() |
||||||||
| Björgvin Guðmundsson fæddist á Rjúpnafelli í Vopnafirði 26. apríl 1891. Hann fékk lítilsháttar tilsögn í harmóníumleik í sinni heimabyggð. Björgvin fluttist til Vesturheims 1911 og settist að í Winnipeg og vann þar við störf sem til féllu. Hann hóf snemma afskipti af söngmálum vestra og stjórnaði kórum og leitaði tilsagnar í hljómfræði. Árið 1926 hóf hann nám við Royal Collage of Music í London og lauk þaðan burtfararprófi í hljómfræði 1928. Hann fluttist aftur til Íslands 1931 og settist að á Akureyri og gerðist þar tónlistarkennari og kórstjóri. Björgvin var afkastamikið tónskáld og eftir hann liggja fjölbreytilegar tónsmíðar. Hann lést 1961. | ||||||||
|
|
||||||||
| Andvaka / Björgvin Guðmundsson Ave María / messutexti Brúðurin á Dröngum / Hulda Dags lít ég deyjandi roða / Björn Halldórsson Daladóttir / Hulda Dauðs manns sundið / Hannes Hafstein þýddi Draumadísin / Steingrímur Thorsteinsson Ég þig tilbið / séra Páll Jónsson Eitt lítið blóm / Sigurður Eggerz Forsjónin / Matthías Jochumsson Friðarbæn / Ókunnur höfundur Fýkur yfir hæðir / Jónas Hallgrímsson Gamla konan / Guðmundur Guðmundsson Haga-systur / Björgvin Guðmundsson Hann Tosti / Hannes Hafstein þýddi Harmslagur / Guðmundur Guðmundsson Hátt ég kalla / Matthías Jochumsson Heyr þú himna smiður / Kolbeinn Tumason Hvar mun skjól? / Hjálmar Jónsson í Bólu Hvert andvarp hennar / Guðmundur Guðmundsson Í dalnum / Steingrímur Thorsteinsson Í hljóðri kyrrð / Björgvin Guðmundsson þýddi Í rökkurró hún sefur / Guðmundur Guðmundsson Jónsmessunótt / Ingveldur Einarsdóttir Kæra vor / Þorsteinn Erlingsson Karla-grobb / Bjarni Thorarensen Krummavísur / Jón Thoroddsen Kvöld / Þorsteinn Erlingsson Kvöld í skógi / Margrét Jónsdóttir Kvöldbæn / Sveinbjörn Egilsson, Páll Jónsson Kvöldvers / Björgvin Guðmundsson þýddi Lágnætti (Svefn á hvarma sígur) / F. Jónsson Láttu´ ekki Guð minn ljósið mitt / Guð. Guðmundsson Löng er nóttin / Davíð Stefánsson Mánadísin / Davíð Stefánsson Móðir við barn / Björgvin Guðmundsson Nótt (Nú máttu hægt...) / Þorst. Erlingsson |
Ó, fögur er vor fósturjörð / Jón Thoroddsen Sá eg fljúga svani / Björgvin Guðmundsson Sál mín bið þú / Helgi Hálfdanarson Sé ég blikubólstra svarta / Hulda Sem ósungið harm-ljóð / Guðmundur Guðmundsson Síðasta nótt Jóns Arasonar / Þorsteinn Erlingsson Sjá dagar koma / Davíð Stefánsson Sjómannabæn / Steingrímur Thorsteinsson Sólin ei hverfur / Steingrímur Thorsteinsson Sólkveðja / Steingrímur Thorsteinsson Söngur Björns / Jóhann Frímann Söngur Þuríðar / Jóhann Frímann Stormar / Steinn Sigurðsson Streymið öldur / Hulda Svanaljóð / Böðvar Bjarkan Svíf þú fugl / Steingrímur Thorsteinsson Svífur að haustið - / Steingrímur Thorsteinsson Svífðu nú sæta / Steingrímur Thorsteinsson Tárið (Þú sæla heimsins...) / Kristján Jónsson Til þín ég, Drottinn... / G. Einarsson / Bj. Halldórsson Tunglið, tunglið taktu mig / þjóðvísa Um nótt (Horfinn er dagur) / Lárus Thorarensen Vertu hjá mér / Stefán Thorarensen þýddi Vertu sæl / Matthías Jochumsson Vetrarnóttin / Davíð Stefánsson Via dolorosa / Jóhann Frímann Víst ertu Jesú kóngur klár (þjóðlag) / Hallgrímur Pétursson Vísur Solveigar (Skógurinn vænn) / Indriði Einarsson Við sitjum í rökkri (dúett) / Guðmundur Guðmundsson Vögguvísa (Blunda þú blunda) / Valdimar Briem Vögguvísa Höllu (Sofðu unga...) / Jóhann Sigurjónsson Þei, þei og ró, ró / Guðmundur Björnson (Gestur) Þó að margt hafi breyst / Davíð Stefánsson Þótt þú langförull legðir / Stephan G. Stepansson Þú leggur aftur leiðir / Guðm. Guðmundsson þýddi Ættjarðarást / Páll J. Árdal |
|||||||