| Emil Thoroddsen | |||||||||
![]() |
|||||||||
| Emil Thoroddsen var fæddur í Keflavík 16. júní 1889. Hann nam listasögu og málaralist við Kaupmannahafnarháskóla 1917-20 og jafnframt hljómlist. Hann stundaði tónlistarnám í Dresden og Leiðzig 1921-25. Emil var hljómsveitarstjóri Leikfélags Reykjavíkur 1925-30 og frá 1930 aðalpíanóleikari Ríkisútvarpsins. Hann skrifaði um árabil um myndlist og tónlist í Morgunblaðið. Meðal verka hans eru einkum einsöngslög og kórtónlist þar á meðal Alþingishátíðarkantata og Íslands Hrafnistumenn. Emil þýddi og staðfærði fjölda leikrita ásamt að semja nokkur og var einn af stofnendum léikfélagsins Fjalakattarins. Hann bjó sögur afa síns Jóns Thoroddsen í leikform og samdi tónlist við eina þeirra. Hann var góður listmálari og hélt sýningu á verkum sínum. Emil lést 1944. | |||||||||
|
|
|||||||||
| Berserkjabragur / Magnús Ásgeirsson þýddi Búðarvísa / Jón Thoroddssen Eitt í dag og annað á morgun / Gengið er nú / Jón Thoroddsen Hver á sér fegra föðurland / Hulda Í fögrum dal / Jón Thoroddsen Íslands hrafnistumenn / Örn Arnarson Komdu, komdu kiðlingur / Jón Ólafsson þýddi Kveðja (Í fögrum klæðum) / Egill Bjarnason þýddi Matgoggsvísur / Jón Thoroddsen Mitt er ríkið / Guðmundur Guðmundsson Nachts (Um nótt) / Hans Muller |
Rísi hér af helgum grunni / Ókunnur höfundur Sáuð þið hana systur mína / Jónas Hallgrímsson Sjómenn Íslands / Jón Magnússon Smalastúlkan / Jón Thoroddsen Syndaflóðið / Magnús Ásgeirsson Til Skýsins / Jón Thoroddsen Víkurbragur / Jón Thoroddsen Vísa Guðmundar Scheving / Gunnar Gunnarsson Vöggukvæði (Litfríð og ljóshærð) / Jón Thoroddsen Wiegenlied / Wolf, Karl að tókst / Ókunnur höfundur Þegar tómahljóð í tunnunni / Ókunnur höfundurÞ |
||||||||