Eyþór Stefánsson
Eyþór Stefánsson er fæddur á Sauðárkróki 23. janúar 1901. Hann naut tilsagnar í tónlist m.a. hjá Páli Ísólfssyni og Emil Thoroddsen og í leiklist hjá Indriða Waage og stundaði síðar framhaldsnám í sömu greinum í Hamborg. Framan af ævi sinni starfaði Eyþór við verslunar- og skrifstofustörf á Sauðárkróki, en segja má að aðalstarf sitt hafi hann unnið að tónlistar- og leiklistarmálum, bæði sem söngkennari, organleikari og söngstjóri og sem leikari og leikstjóri. Hann hefur einnig verið óþreytandi frömuður félaga og samtaka sem unnið hafa að þessum og ýmsum öðrum þjóðþrifamálum. Hefur hann verið kjörinn heiðursfélagi margra slíkra samtaka og hlotið margvíslegan annan sóma af þeirra hendi. Eyþór Stefánsson hefur gefið út allmörg sönglög og hafa mörg þeirra notið mjög mikilla vinsælda.

Amma mín (dúett) / Haraldur Hjálmarsson
Ave María
(dúett) / messutexti
Á vegamótum /
Bikarinn / Jóhann Sigurjónson
Hjá vöggunni / Helgi Konráðsson
Lindin / Hulda
Mamma / Friðrik Hansen
Mánaskin / Helgi Konráðsson
Myndin þín / Gísli Ólafsson
Nóttin með lokkinn ljósa / Jóhann Sveinsson
Sofðu rótt / Guðmundur Guðmundsson
Sólsetursljóð / Jónas Hallgrímsson
Söngur harpslagarans / Grétar Fells