Fjölnir Stefánsson
Fjölnir Stefánsson er fæddur 1930. Hann nam sellóleik hjá dr. Heinz Edelstein við Tónlistarskólann í Reykjavík frá 1943 og síðar hljómfræði og tónsmíðar hjá Jóni Þórarinssyni og lauk burtfararprófi 1954. Frá 1954-58 var Fjölnir við framhaldsnám í London og þegar heim kom gerðist hann kennari í hljómfræði við Tónlistarskólann í Reykjavík. Hann varð skólastjóri Tónlistarskóla Kópavogs 1968. Fjölnir var einn af stofnendum Musica Nova 1959, sat í stjórn Íslenskrar tónverkamiðstöðvar 1964-84 og í stjórn STEFs 1974-88. Hann var valinn heiðurslistamaður Kópavogs 1994. Eftir Fjölni liggja fjölbreytilegar tónsmíðar sem oft hafa verið valdar til flutnings á íslenskum sem erlendum tónlistarhátíðum.

Á sofinn hvarm þinn / Steinn Steinarr
Endurfundir / Tómas Guðmundsson
Enn fagnar heimur / Ókunnur höfundur
Ég var drúpandi höfuð / Steinn Steinarr
Ég þekki Grýlu (þjóðlag) / Þjóðvísa
Fagurt er í Fjörðum (þjóðlag) / Látra-Björg
Fuglinn í fjörunni (þjóðlag) / Þjóðvísa
Í sólhvítu ljósi / Steinn Steinarr
Kvöldvísa (Sígur sól við viðar) / Ókunnur höfundur
Litla barn með lokkinn bjarta / Halldóra B. Björnsson
Litlu börnin leika sér (þjóðlag) / Þjóðvísa
Senn er komið sólarlag (þjóðlag) / Þjóðvísa
Snjótitlingurinn / Sólveig frá Niku
Sof þú blíðust (þjóðlag) / Þjóðvísa
Tíminn og vatnið - lagaflokkur / Steinn Steinarr