Friðrik Bjarnason
Friðrik Bjarnason fæddist 27. nóvember 1880 á Stokkseyri. Var hann sonur Bjarna Pálssonar, fyrsta organleikarans á Stokksseyri. Friðrik lauk kennaraprófi frá Flensborgarskóla1904. Tvö ár þar á eftir var hann farkennari í Flóanum. Seinna árið hóf hann að læra organleik og var fljótlega ráðinn organleikari við Gaulverjabæjarkirkju. 1908 fluttist hann til Hafnarfjarðar og var ráðinn söngkennari við Flensborgarskólann. Má segja að þá hafi eiginlegt ævistarf hans hafist. Friðrik var 13 ár söngkennari við Flensborg og organleikari við Þjóðkirkjuna í 35 ár. Hann stofnaði karlakórinn Þresti 1912 og kvennakórinn Erlur árið 1919. Friðrik jók stöðugt við þekkingu sína. 1912-13 stundaði hann nám við tónlistardeild Kennaraháskólans í Kaupmannahöfn ástamt því að sækja nám til fleiri landa. Varð hann með tímanum vel menntaður tónlistarmaður. Friðriks er ekki síst minnst fyrir þátt hans í útbreiðslu sönglistar í skólum. Hann lést 1962.

Nú fljetta norðljós / Guðmundur Guðmundsson
Sól / Sigurjón Guðjónsson
Sólarlag / Þorsteinn Gíslason
Stjörnur um nótt /
Tónaflug / Jónas Guðlaugsson
Við Babelsfljót / Þorsteinn Gíslason
Vorblær / Fríða Hallgríms
Það kvöldar / Kristmann Guðmundsson
Þögula nótt / Sigurjón Guðjónsson
Abba-labba-lá / Davíð Stefánsson
Brúðuvísur / Ragnheiður Jónsdóttir
Ferðbúinn / Magnús Stefánsson (Örn Arnarson)
Haustljóð / Sigurður Jónsson
Hljóðar nætur / Sigurjón Friðjónson
Hvíl mig rótt / Benedikt Þ. Gröndal
Hvíldir / Jón Magnússon
Kvöldkyrrð / Bjarni Jónsson frá Vogi
Kvöldvers / Ókunnur höfundur