| Gunnar Sigurgeirsson | |||||||
![]() |
|||||||
| Gunnar Sigurgeirsson fæddist að Stóruvöllum í Bárðardal 1901 en fluttist þaðan barnungur til Akureyrar með foreldrum sín 1922-24 stundaði hann nám í píanóleik hjá Kurt Haeser á Akureyri, en seinna er Gunnar fluttist til Reykja-víkur stundaði hann nám hjá Emil Thoroddsen og tónfræði hjá Franz Mixa og síðar hjá Victor Urbancic. Meðfram námi stundaði hann kennslustörf. Hann flutti aftur til Akureyrar og var þar við píanókennslu og rak um leið hljóðfæra- og hljómplötuverslun. 1935 flutti Gunnar enn á ný til Reykjavíkur og var píanókennsla hans aðalstarf ásamt tónlistarkennslu í skólum. Hann stjórnaði um tíma Breiðfirðingakórnum og Lögreglukórnum og hann var organisti Háteigssóknar frá stofnun safnaðarins 1953, en Gunnar lést 1970. | |||||||
|
|
|||||||
| Una / Davíð Stefánsson Litla skáld / Þorsteinn Erlingsson |
|||||||