Hallgrímur Helgason
Hallgrímur Helgason fæddist á Eyrarbakka 3. nóvember 1914. Hann varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík 1933 og nam fiðluleik við Tónlistarskólann í Reykjavík. 1934 hélt hann til framhaldsnáms, fyrst til Kaupmannahafnar en síðar til Leipzig og var þar við nám í hljóðfærarleik og tónfræðum á árunum 1936-39. Er heimstyrjöldin síðari braust út flutti Hallgrímur til Íslands. 1947 hélt hann til Sviss til framhaldsnáms við Tónlistarskólann í Zürich og1954 varði hann fyrstu íslensku doktorsritgerðina í tónvísindum. Næstu ár var hann aðstoðarprófessor við háskólann í Erlangen og flutti jafnframt fyrirlestra víða í Evrópu. Árið1956 kom Hallgrímur aftur til Íslands. Árið1966 varð hann prófessor í tónfræðum og tónsmíðum við háskólann í Saskatchewan-fylki í Kanada og síðar gestaprófessor við háskólann í Berín. Árið1974 sneri hann enn til Íslands og tók stöðu við Háskóla Íslands. Hallgrímur lést 1994.

Dygg skal sál / Einar Benediktsson
Ef engill ég væri / Elín Eiriksdóttir
Endur fyrir löngu / Jóhannes úr Kötlum
Ennþá skín sól / Ólafur Jóhann Sigurðsson
Fagurt galaði fuglinn sá (þjóðlag) / Eggert Ólafsson
Gamlar vísur / Ókunnur höfundur
Haustkvöld / Snorri Hjartarson
Heiðasvanurinn / Ólafur Jóhann Sigurðsson
Heimþrá / Ólafur Jóhann Sigurðsson
Heimþrá / Ólafur Jóhann Sigurðsson
Hér sat fugl / Þorsteinn Gíslason
Íslands Hrafnistumenn / Örn Arnarson
Keisari nokkur mætur mann (úts) / þjóðvísa
Kvöldsöngur / Sigurður Sigurðsson frá Arnarholti
Laufblað / Jóhannes úr Kötlum
Leiðin löng / Ólafur Jóhann Sigurðsson
Lindin / Pétur Jakobsson
Litla kvæðið um gymbil / Jón Magnússon
Lóan í mónum / Rósa B. Blöndal
Lækurinn / Pétur Jakobsson
Máríuvísa / Jón Helgason
Meistari himna / Björn Gunnlaugsson
Miðnætti / Ólafur Jóhann Sigurðsson
Nú afhjúpast ljósin / Jón Helgason
Rödd völvu / Ólafur Jóhann Sigurðsson
Selur svaf á steini (úts) / Jónas Hallgrímsson
Senn / Ólafur Jóhann Sigurðsson
Siglum á sæinn / Skuggi
Smalastúlkan / Matthías Jochumsson
Systurnar góðu / Ólafur Jóhann Sigurðsson
Söknuður / Sigurður Sigurðsson frá Arnarholti
Tólf sona kvæði (úts) / Guðmundur Bergþórsson
Trúnaður / Björn Halldórsson frá Laufási
Vetrarblíða / Ókunnur höfundur
Vetrarsólhvörf / Einar Benediktsson
Veturgrið / Snorri Hjartarson
Vítaslagur / Þorlákur Þórarinsson
Þrátefli / Ólafur Jóhann Sigurðsson
Þú bláfjallageimur / Steingrímur Thorsteinsson