| H. Sigurður Helgason | |||||||
![]() |
|||||||
| (Helgi) Sigurður Helgason var fæddur í Reykjavík 12. febrúar 1872, sonur Helga Helgasonar tónskálds. Hann lærði ungur hljóðfæraleik hjá föðurbróður sínum Jónasi Helgasyni organleikara, Steingrími Johnsen og Önnu Pétursson píanókennara. Hann fluttist til Vesturheims 1890 og stundaði þar tónlistarnám, bæði hjá einkakennurum og síðar við Polytechnic Institude of Los Angeles. Hann bjó á ýmsum stöðum vestra, um tíma í Winnipeg en síðar lengst af í Washingtonfylki í Bandaríkjunum og stjórnaði þar kórum og vann að tónlistarmálum. Sigurður lést 1958. | |||||||
|
|
|||||||
| Fjóla (Heiðbláa fjólan mín fríða) / Páll J. Árdal Hret / Benedikt Gröndal Sumardagur / Páll J. Árdal Þótt þú langförull legðir / Stepan G. Stephansson |
|||||||