Ingi T. Lárusson
Ingi T. Lárusson var fæddur á Seyðisfirði 26. ágúst 1892. Á æskuheimili hans var tónlist mjög í hávegum höfð. Faðir hans þótti leika mjög vel á harmóníum og kenndi ýmsum þá list. Fleiri hljóðfæri voru á heimilinu og léku þau öll í höndum Inga, en eiginlega tónlistarmenntun hlaut hann ekki. Hann settist ungur í Verslunarskólann í Reykjavík og lauk þar námi 1913. Eftir það var hann við verslunarstörf á Seyðisfirði og víðar, en lengst var hann símstöðvarstjóri í Neskaupsstað á annan áratug. Enn var hann við störf á ýmsum stöðum og andaðist á Vopnafirði 24. mars 1946. Ingi byrjaði kornungur að semja lög og var um tvítugt þegar "Ó, blessuð vertu, sumarsól" birtist í tímaritinu Óðni. Í "Íslensku söngvasafni", fyrra heftinu sem kom út 1915, eru tvö lög eftir Inga. Vinur hans, Arreboe Clausen, safnaði saman því sem til náðist af lögum hans og gaf út í hefti skömmu eftir andlát tónskáldsins. Mörg þessara laga eiga miklum vinsældum að fagna.

Ástkæra ylhýra málið / Ókunnur höfundur
Eins og vorblær / Hannes Hafstein
Ég bið að heilsa / Jónas Hallgrímsson
Heimþrá /
Heyr mig, lát mig lífið finna / Indriði Einarsson
Hríslan og lækurinn / Páll Ólafsson
Komum tínum berin blá / Guð. Guðmundsson
Kvöld í sveit / Guðmundur Guðmundsson
Lífið hún sá í ljóma þeim / Þorsteinn Erlingsson
Ó, blessuð vertu sumarsól / Páll Ólafsson
Syng þú mér nú ljúflingslag / Guð. Guðmundsson
Vorljóð
(Hallar degi...) / Guðmundur Guðmundsson
Það er svo margt / Einar J. Sæmundssen
Þrjú ljóð:
Sólskríkjan - Litla skáld - Nú sé ég og faðma
/ Páll Ólafsson, Þorsteinn Erlingsson
Öll él birtir upp um síðir / Bjarni Jónsson frá Vogi