Ísólfur Pálsson
Ísólfur Pálsson var fæddur 1871 á Stokkseyri, yngstur 12 systkina í ætt þar sem tónlistariðkun var í hávegum höfð. Á uppvaxtar- og fullorðins-árum Ísólfs á Stokkseyri var mikið og blómlegt menningarlíf bæði á Stokkseyri og Eyrarbakka. Jón bróðir hans kenndi honum organleik en að öðru leiti aflaði hann sér af sjálfsdáðun þeirrar tónmenntunar er hann fýsti. Ísólfur tók við organleikarastarfinu við Stokkseyrarkirkju tvítugur að aldri. Auk kirkjukórsins æfði hann og stjórnaði blönduðum kór svo og vinsælum karlakvartett sem fór víða. 1910 fór Ísólfur til Danmerkur til að læra hljóðfærasmíði. Flutti hann 1912 til Reykjavíkur ásamt fjölskyldu sinni og gerði hljóðfærasmíði, viðgerðir og stillingar að aðalstarfi sínu. Einnig stofnsetti hann verslunina Hljóðfærahús Reykjavíkur, þar sem var mikið úrval hljóðfæra ásamt hljómplötum til sölu. Var sú verslun eflaust sú fyrsta sinnar tegundar á landinu. Ísólfur andaðist 1941. Hann er faðir Páls Ísólfssonar tónskálds.

Fjólan / Ókunnur höfundur
Haust / Freysteinn Gunnarsson
Hreiðrið mitt
úts. P.Í. / Þorsteinn Erlingsson
Röddin / Matthías Jochumsson þýddi
Sofðu, sofðu barnið blíða (úts. PÍ) / Ísólfur Pálsson
Sumarnótt
(dúett) úts. P.Í. / Ókunnur höfundur
Vögguvísa
(Fuglinn sefur...) / Freysteinn Gunnarsson
Það árlega gerist / Hallgrímur Jónsson