| Jakob Hallgrímsson | ||||||||
![]() |
||||||||
| Jakob Hallgrímsson er fæddur í Reykjavík 1943. Hann stundaði nám í fiðluleik við Tónlistarskólann í Reykjavík og lauk þaðan burtfararprófi 1964. Þá fór hann til náms við Tchaikovsky kenservatóríið í Moskvu 1964-66 og seinna, eða 1977-78, við Musikhögskolan í Stokkhólmi. Hann nam tónfræði og kontrapunkt hjá dr. Hallgrími Helgasyni og var við píanónám hjá Ragnari H. Ragnars í nokkur ár. Einnig var hann við orgelnám við Tónskóla þjóðkirkjunnar. Jakob hefur verið tónlistarkennari við ýmsa skóla víða um landið og leikið í Sinfóníuhljómsveit Íslands. Hann hefur stjórnað ýmsum kórum og var um tíma organisti við Súðavíkurkirkju. Jakob hefur samið einsöngslög og Jólakantötu fyrir barnakór og strengjasveit. Jakob lést 1999. | ||||||||
|
|
||||||||
| Allar vildu meyjarnar / Davíð Stefánsson Brúðarskórnir / Davíð Stefánsson Hjá lygnri móðu / Halldór Kiljan Laxness |
Maístjarnan / Halldór Kiljan Laxness Um hina heittelskuðu / Halldór Kiljan Laxness Vorvísa (Hve bjart er veður) / Halldór Kiljan Laxness |
|||||||