Jón Ásgeirsson
Jón Ásgeirsson er fæddur á Ísafirði 1928. Hann stundaði nám við Tónlistarskólann í Reykjavík þar sem aðalkennarar hans voru Árni Kristjánsson, Jón Þórarinsson og dr. Victor Urbancic. Að námi loknu hérlendis stundaði hann framhaldsnám við Konunglega skoska háskólann í Glasgow og síðar Guildhall School of Music í London. Jón hefur síðan unnið við kennslu, fyrst á Neskaupsstað, en lengst af við Kennaraháskóla Íslands og Söngskólann í Reykjavík. Hann hefur ritað talsvert um tónlist auk þess að vera tónlistargagnrýnandi Morgunblaðsins. Hann hefur einnig stjórnað kórum, lúðrasveitum og auk þess Sinfóníuhljómsveit Íslands í eigin verkum. Jón Ásgeirsson sækir efnivið tónsmíða sinna gjarnan til íslenskra þjóðlaga og hefur hann útsett fjölmörg þjóðlög bæði fyrir hljóðfæraflokka, kóra og einsöng. Hann hefur samið konserta og tvær óperur; Þrymskviðu og Galdra-Loft.
Augun mín og augun þín / Rósa Guðmundsdóttir
Á jólanótt / Gunnar Dal
Barnagæla frá Nýa Íslandi / Halldór Kiljan Laxness
Bára blá (þjóðlag) / Magnús Grímsson
Eirlitir dagar / Stefán Hörður Grímsson
Fögnuður / Matthías Johannessen
Geng ég fram á gnípur / Matthías Jochumsson
Haldiðún Gróa hafi skó / Halldór Kiljan Laxness
Halló litli villikötturinn minn / Stefán Hörður Grímsson
Hefnd / Kristján Jónsson
Hjá lygnri móðu / Halldór Kiljan Laxness
Hvíslar mér hlynur / Jóhann Sigurjónsson
Hvítflibbaþræll /
Jólaljóð / Einar Bragi
Kvæði til Bakkusar / Þorgeir Þorgeirsson
Kvöldvísur um sumarmál / Stefán Hörður Grímsson
Litla mamma / Bragi Magnússon
Maístjarnan / Halldór Kiljan Laxness
Nú er garðstígurinn þögull / Stefán Hörður Grímsson
Occidente sole / Jónas Hallgrímsson
Regn í maí / Einar Bragi
Sigurður Breiðfjörð / Halldór Kiljan Laxness
Skammdegisvísa / Stefán Hörður Grímsson
Spilafífl / Magnús Stefánsson (Örn Arnarson)
Steinninn / Stefán Hörður Grímsson
Stundum þungbær... (þjóðlag) / Sigurður Breiðfjörð
Stúlka með brún augu / Matthías Johannessen
Stökur / Einar Benediktsson
Svanurinn / Þorsteinn Valdimarsson
Svartálfadans / Stefán Hörður Grímsson
Til konu minnar (Eins og sól...) / Magnús Guðbrandsson
Tröllaslagur / ýmsir skráðu, Jón hnikaði
Utan hringsins / Steinn Steinarr
Vetrardagur / Stefán Hörður Grímsson
Vor hinsti dagur er hniginn / Halldór Kiljan Laxness
Vorvísa / Halldór Laxness
Þegar undir skörðum mána / Stefán Hörður Grímsson
Þótt form þín hjúpi graflín / Halldór Kiljan Laxness
Þrjár stökur / Magnús Stefánsson (Örn Arnarson)
Þrösturinn / Matthías Johannessen
Þú kystir mína hönd / Halldór Kiljan Laxness