|
|
|
 |
Jónas Helgason var fæddur í Reykjavík 1839. Hann lærði fyrst járn-smíði, fékk sveinsbréf 1856 og setti upp járnsmiðju í Bankastræti sem hann starfrækti fram til ársins 1881. Hann lærði ungur að leika á fiðlu og harmóníum og1862 stóð hann að stofnun söngfélags sem síðar var nefnt Harpa, og var hann stjórnandi þess í 30 ár. Árið1875 fór Jónas til Kaupmannahafnar til náms í söng, tónfræði og orgelleik. Árið eftir varð hann kennari við Kvennaskólann og Barnaskólann og seinna gerðist hann kennari við skóla Seltirninga í Mýrarhúsum. Árið1877 réðst Jónas til starfs sem organleikari við Dómkirkjuna og gegndi hann því til dauðadags. Einnig var honum falið að kenna organleikurum og er hann féll frá höfðu nær allir organleikarar landsins notið kennslu hans. Þá hafði hann stuðlað að því að harmóníumhljóðfæri komu í ýmsar kirkjur til sveita. Jónas stóð fyrir útgáfu fjölda bóka með söng-lögum, auk fræðibóka í söng og tónfræði. Höfðu þessar bækur víðtæk áhrif. Jónas andaðist 1903. |
|