Jónas Tómasson yngri
Jónas Tómasson yngri er fæddur 1946. Afi hans, Jónas Tómasson eldri, var afkastamikill í tónlistarlífi á Ísafirði og eru mörg sönglaga hans vel þekkt. Jónas yngri stundaði nám við Tónlistarskólann í Reykjavík og voru Þorkell Sigurbjörnsson og Jón Þórarinsson meðal kennara hans. Hann hélt til framhaldsnáms í Amsterdam 1969-72. Jónas kennir nú við Tónlistarskólann á Ísafirði og hefur jafnframt stjórnað bæði hljóðfæra-flokkum og kórum. Hljómsveitar-, kammer- og kórverk hafa verið mest áberandi meðal tónsmíða hans.

Cantata III / Helgi Hálfdánarson
Ef vér höfum dáið með honum / biblíutexti
Hvíti trúðurinn / Nína Björk Árnadóttir
Róa, róa rambinn / Nína Björk Árnadóttir
Segið dótturini Síon / biblíutexti
Vakna þú, sem sefur / biblíutexti