Jón Laxdal
Jón Laxdal fæddist á Akureyri 1865. Hann hóf vinnu við verslunarstörf 12 ára gamall og vann að þeim síðan á ýmsum stöðum á landinu, var um árabil verslunarstjóri á Ísafirði og síðan umsvifamikill kaupsýslu- og athafnamaður í Reykjavík, gegndi trúnaðar- og virðingarstöðum og lét sín um margt að góðu getið. Á Ísafirði varð hann forystumaður í vaknandi sönglífi og í Reykjavík var hann einn af stofnendum karlakórsins "17. júní" sem Sigfús Einarsson stjórnaði. Jón hlaut litla tónlistarmenntun, einhverja tilsögn hlaut hann hjá Magnúsi Einarssyni organista og hjá Birni Kristjánssyni alþingismanni í byrjunaratriðum hljómfræðinnar. Hann samdi m.a. tvo lagaflokka sem áttu miklum vinsældum að fagna, eins og líka mörg einstök sönglög. Þau voru ekki samin af lærdómi heldur meðfæddri tónlistargáfu sem fékk því miður aldrei að þroskast. Jón Laxdal andaðist 1928.

Andlátið / Guðmundur Guðmundsson
Á gróðrarstöð / Guðmundur Magnússon
Bergljót / Guðmundur Guðmundsson
Brúðkaup / Guðmundur Guðmundsson
Einar Benediktsson / Sigurður Sigurðsson
Ég elska þig / Matthías Jochumsson
Festar / Guðmundur Guðmundsson
Fuglar í búri / Hannes Hafstein
Fögur er Hlíðin / Guðmundur Guðmundsson
Gunna á Brú / Matthías Jochumsson
Gunnar kveður í hauginum / Guð. Guðmundsson
Gunnar og Kolskeggur / Guð. Guðmundsson
Gunnar og Njáll / Guðmundur Guðmudnsson
Heimasætan / Guðmundur Guðmundsson
Hólmgangan / Guðmundur Guðmundsson
Hugraunir / Guðmundur Guðmundsson
Kveðja til Ólafs Björnssonar / Ókunnur höfundur
Lít þú hátt! / Guðmundur Magnússon
Oft um ljúfar ljósar sumarnætur / Hannes Hafstein
Lognsær / Einar Benediktsson
Mótið / Hannes Hafstein
Nauðung / Guðmundur Guðmundsson
Oss stoðar ei / Matthías Jochumsson
Sólskríkjan / Þorsteinn Erlingsson
Syngið syngið svanir mínir / Guðmundur Magnússon
Vögguljóð
(Dreymi þig...) / Matthías Jochumsson
Hallgerður / Guðmundur Guðmundsson
Til Matthíasar Jochumssonar / Hannes Hafstein
Til þrílita fánans / Ókunnur höfundur
Þráin / Guðmundur Guðmundsson