Jón Leifs
Jón Leifs fæddist Sólheimum í Húnavatnssýslu 1899. Hann lauk prófi frá Menntaskólanum í Reykjavík 1916, en hafði þá hafið tónlistar-nám. Sama ár fluttist hann til Leipzig og var þar við tónlistarnám til 1922. Jón bjó og starfaði sem hljómsveitarstjóri í ýmsum borgum Þýskalands og kom m.a. til Íslands með Fílharmóníu Hamborgar. 1944 flutti hann alfarinn til Íslands. Allt frá 1921 lagði hann stund á íslensk þjóðlög og rannsakaði þjóðlagasafn Bjarna Þorsteinssonar auk þess sem hann safnaði og hljóðritaði þau. Birti hann niðurstöður sínar bæði á íslensku og þýsku. 1935-1937 var hann tónlistarstjóri Ríkis-útvarpsins. 1945 stofnaði hann Tónskáldafélag Íslands og 1948 stofnaði hann Samband tónskálda og eigenda flutningsréttar, STEF. Jón Leifs lést 1968.

Allt eins og blómstrið eina / Hallgrímur Pétursson
Ástarvísur til Steingerðar / Kormákur
Breiðafjörður
(Úti ert þú við eyjar blár) / þjóðvísa
Brennusöngur Skarphéðins / fornkvæði
Deyr fé, deyja frændur / Hávamál
Draugadans / Sigurður Grímsson
Faðir vor / biblíutexti
Góða nótt / Einar Benediktsson
Haugskviða Gunnars / Njálssaga
Heimþrá / Jónas Hallgrímsson
Helsöngur Þormóðar / fornkvæði
Hjörtun tefjast / Jónas Hallgrímsson
Hrafnsmál / Sturla Þórðarson
Húskarlahvöt / fornkvæði
Höggvinsmál Þóris Jökuls / Þórir jökull
Í Gymis görðum ek ganga sá / Edda
Löng er nótt, löng er önnur / Edda
Máninn líður / Jóhann Jónsson
Minningaland /
Ríma / Einar Benediktsson
Siglingavísa / Egill Skallagrímsson
Skírnarsálmur /
Sólhvörf / Jónas Hallgrímsson
Stattu steinhús /
Torrek / Egill Skallagrímsson
Ungur vark forðum / Hávamál
Upp upp mín sál / Hallgrímur Pétursson
Vertu Guð faðir... / Hallgrímur Pétusson
Vorkvæði op.23, nr.3 / Halldór Kiljan Laxness
Vögguvísa / Jóhann Jónsson
Það mælti mín móðir / Egill Skallagrímsson
Þagalt og hugalt / Hávamál
Þula op.23, nr.1 / Sigurður Grímsson