Jón Nordal
Jón Nordal er fæddur 1926 í Reykjavík. Hann nam við Tónlistar-skólann í Reykjavík og lauk þaðan burtfararprófi í píanóleik 1948 og í tónsmíðum 1949. Hann stundaði framhaldsnám í sömu greinum við Konservatorium für Musik í Zürich í Sviss 1949-51, dvaldi í Kaupmanna-höfn 1952-54, námsdvöl í Róm og París 1956-57 og sótti sumarnámskeið í Dramstadt. Milli námsdvala erlendis kenndi Jón píanóleik og tónsmíðar við Tónlistarskólann í Reykjavík svo og frá 1957. Hann var skólastjóri Tónlistarskólans í Reykjavík 1959 til 1992. Jón hefur unnið mikið að tónlistarmálum með setu í ýmsum nefndum, sat í stjórn STEFs 1968-87, Tónskáldasjóðs Ríkisútvarpsins frá 1967 og Tónmenntasjóðs kirkjunnar frá 1975, auk þess að vera stjórnarmaður í NOMUS, tónlistarsamstarfs-nefnd Norðurlanda og tónlistarháskólaráði Norðurlanda. Verk Jóns hafa verið flutt víða um heim á tónleikum, í útvarpi og sjónvarpi og verið gefin út á hljómplötum og geisladiskum.

Barnagæla úr Silfurtunglinu (Hvert örstutt spor) / Halldór Laxness