Jón Þórarinsson
Jón Þórarinsson er fæddur í Eiðaþinghá. Að loknu stúdentsprófi stundaði hann nám í Tónlistarskólanum í Reykjavík og í einkatímum og síðar í Yale háskóla í Bandaríkjunum. Lauk hann meistaraprófi 1947. Hann var yfirkennari í tónfræði og tónsmíði við Tónlistarskólann 1947-68 og hafði jafnframt á hendi störf við Ríkisútvarpið og sem stjórnarmaður og framkvæmdastjóri Sinfóníuhljómseitar Íslands. Þá var hann dagskrárstjóri í Sjónvarpinu 1968-79. Hann hefur gengt ýmsum trúnaðarstörfum, m.a. í samtökum listamanna og fengist við ritstörf, m.a. samið ævisögu Sveinbjörns Sveinbjörnssonar tónskálds. (Rvík 1969) og ítarlegar greinar um Björgvin Guðmundsson (Árbók Landsbókasafns 1965) og Pál Ísólfsson (Andvari 1979). Hann er nú að skrifa Tónlistarsögu Íslands. Jón Þórarinsson hefur samið allmörg tónverk af ýmsu tagi.

Blástjarnan (þjóðlag) /
Fuglinn í fjörunni / þjóðvísa
Gæt þín / ekki getið
Gömul vísa / Andrés Björnsson
Hljóð streymir lindin / Steinn Steinarr
Íslenskt vögguljóð á Hörpu / Halldór Laxness
Jeg elsker dig / Magdalene Thoresen
Jeg fandt i morges / Kristmann Guðmundsson
Nú legg ég augun aftur / Svbj. Egilsson /M. Jochumss.
Sex gamlir húsgangar /
Siesta / Steinn Steinarr
Söknuður (þjóðlag) /
Úti er þú við eyjar blár (þjóðlag) /
Vögguvísa (Illa dreymir drenginn minn) / Páll Ólafsson
Vorvísa / Andrés Björnsson
Það vex eitt blóm / Steinn Steinarr