| Jórunn Viðar | ||||||
![]() |
||||||
| Jórunn Viðar er fædd 1918. Hún brautskráðist frá Tónlistarskólanum í Reykjavík 1936 og stundaði næstu tvö árin framhaldsnám við Hochschule für Musik í Berlín. Á árunum 1943-45 nam hún tónsmíðar við Julliard tónlistarskólann í New York og 1959-60 var hún við framhaldsnám í píanóleik í Vínarborg. Hún hefur oft haldið sjálfstæða tónleika og leikið einleik með Sinfóníuhljómsveit Íslands. Hún er afkastamikið tónskáld, meðal verka hennar er t.d. tónlist við fyrstu íslensku kvikmyndina, fyrsta íslenska balletttónlistin og tónlist við nokkur leikrit. Sönglög eru fyrirferðarmikil meðal tónsmíða hennar og einnig hefur hún útsett mörg íslensk þjóðlög. Jórunn starfaði lengi sem píanóleikari og kennari við Söngskólann í Reykjavík. | ||||||
|
|
||||||
| Barnagælur (þjóðlög) / Þjóðvísur Gestaboð um nótt / Einar Bragi Glugginn / Halldór Kiljan Laxness Grýlukvæði (Ég þekki Grýlu) / Stefán Ólafsson Hvar er Jón Jakobsson (þjóðlag) / Þjóðvísa Hvítur hestur í tunglskini / Steinn Steinarr Im Kahn / Heishen, Cäsar Júnímorgunn / Tómas Guðmundsson Kall sat undir kletti / Halldóra B. Björnsson Krummavísa (þjóðlag) / Þjóðvísa Krumminn á skjánum (þjóðlag) / Þjóðvísa Litla Jörp með lipran fót (þjóðlag) / Þjóðvísa Magnús raular (þjóðlag) / Þjóðvísa |
Mamma ætlar að sofna / Davíð Stefánsson Stúlkurnar ganga (þjóðlag) / Þjóðvísa Sönglað á göngu / Valgarður Egilsson Táta, Táta, teldu dætur þínar (þjóðlag) / Þjóðvísa Únglíngurinn í skóginum / Halldór Kiljan Laxness Varpaljóð á Hörpu / Jakobóna Sigurðardóttir Við Kínafljót / Þorgeir Sveinbjarnarson Vorljóð á Ýli / Jakobína Sigurðardóttir Vort líf / Steinn Steinarr Vökuró / Jakobína Sigurðardóttir Það á að gefa börnum brauð / Þjóðvísa Þjóðvísa / Tómas Guðmundsson |
|||||