| Leifur Þórarinsson | ||||||||
![]() |
||||||||
| Leifur Þórarinsson fæddist 1934 og nam ungur fiðluleik hjá Birni Ólafssyni og tónfræði og tónsmíði hjá Jóni Þórarinssyni við Tónlistar-skólann í Reykjavík. Tvítugur hélt hann til Vínarborgar og nam tónsmíðar hjá Hanns Jelinek. Síðan var hann við framhaldsnám hjá Gunther Schuller í Bandaríkjunum um nokkurt skeið. Hann starfaði sem kennari, gagnrýnandi og útvarpsmaður. Verk hans eru af margvíslegum toga, konsertar, einleiks- og hljómsveitarverk og var hann einn af brautryðjendum tólftónastíls á Íslandi. Leifur lést 1998. | ||||||||
|
|
||||||||
| Ave Maria / messutexti Á tímum vor bjölludýra / Stefán Hörður Grímsson Dalvísur / Jónas Hallgrímsson Gamalt ljóð (Löng er nóttin) / Tómas Guðmundsson Í þessu túni / Halldór Kiljan Laxness Kastrup lufthavn / Halldór Kiljan Laxness |
Sáuð þið hana systur mína / Jónas Hallgrímson Skammdegisvísa / Stefán Hörður Grímsson Tvö sönglög (1953) / Var / Stefán Hörður Grímsson Vögguvísa (Þei, þei og ró) / Jóhann Jónsson |
|||||||