| Páll Ísólfsson | ||||||||
![]() |
Páll Ísólfsson var fæddur á Stokkseyri 1893, sonur Ísólfs Pálssonar og Þuríðar Bjarnadóttur. Páll ólst upp í hópi ellefu systkina. Faðir hans kenndi honum ungum á harmóníum og10 ára gamall samdi hann fyrstu lögin sín. Eftir fermingu fluttist hann til Jóns föðurbróður síns í Reykja-vík og vann hann þar ýmis störf næstu fjögur árin. Á þessum árum sótti hann tíma í tónfræði og organleik hjá Sigfúsi Einarssyni. Árið 1913 fór hann til Leipzig og var þar við nám í organleik næstu sex árin og síðustu tvö árin var hann kennara sínum til aðstoðar sem organisti við Tómasar-kirkjuna í Leipzig. Árið1920 snéri Páll heim til Íslands. Hann starfaði fyrst við einkakennslu ásamt tónleikahaldi heima og erlendis, ásamt frekara námi í París. Árið1926 varð hann organleikari við Fríkirkjuna til 1939 er hann varð dómorganisti, en þeirri stöðu gegndi hann til 1963. Páll beitti sér fyrir stofnun tónlistarskóla hér á landi og 1930 var Tónlistar-skólinn í Reykjavík stofnaður. Var Páll fyrsti skólastjóri hans og hélt því starfi í 30 ár. Við stofnun Ríkisútvarpsins sama ár var hann ráðinn tónlistarstjóri. Páll lést 1974. | |||||||
|
|
||||||||
| Að baki blárra heiða / Guðmundur Daníelsson Bergbúinn... / Gestur þýddi Blítt er undir björkunum / Davíð Stefánsson Dagurinn kemur / Davíð Stefánsson Draumsjón / Guðrún Jóhannsdóttir Ég er narsissa ... / biblíutexti Ég heyri ykkur kvaka / Davíð Stefánsson Ég kom í garð minn ... / biblíutexti Ég kveiki´ á kertum mínum / Davíð Stefánsson Fjallið einbúi / Stephan G. Stephansson Frá liðnum dögum / Stefán frá Hvítadal Fyrr þín gæðin fýsilig / Eggert Ólafsson Grundar dóma, hvergi hann / Hanna / Matthías Jochumsson Heimir / Grímur Thomsen Heimþrá / Jóhann Sigurjónsson Heyr það er unnusti minn / biblíutexti Hrosshár í strengjum / Davíð Stefánsson Hvað er það, sem kemur úr heiðinni / biblíutexti Í dag skein sól / Davíð Stefánsson Í harmanna helgilundum / Tómas Guðmundss. Í hvílu minni um nótt ... / biblíutexti Jarpur skeiðar, fljótur frár / Eggert Ólafsson |
Jólasálmur / Freysteinn Gunnarsson Kossavísur / Jónas Hallgrímsson Kóngsdóttir sat í dýri höll / Jak. Jóh. Smári þýddi Litla kvæðið um litlu hjónin / Davíð Stefánsson Máríuvers / Davíð Stefánsson Mitt nafn er líf / Kristján frá Djúpalæk Nú líður sól til sævar / Fn. G.? Nú lokar dagur ljósri brá / Guðmundur Guðmundsson Sálmur (Ó, Guð úr...) / Freysteinn Gunnarsson Sáuð þið hana systur mína / Jónas Hallgrímsson Skógræktarljóð / Jón Loftsson Snati og Óli / Þorsteinn Erlingsson Sumar / Jakob Jóh. Smári Svört er ég / biblíutexti Söknuður / Tómas Guðmundsson Söngur bláu nunnanna / Davíð Stefánsson Söngur völvunnar / Tómas Guðmundsson Úr útsæ rísa Íslandsfjöll / Davíð Stefánsson Vögguvísa (Nú læðist nótt) / Davíð Stefánsson Þar myrkvast loft / Davíð Stefánsson Þið sjáist aldrei framar / Steingrímur Thorsteinsson Þú bláfjallageimur / Steingrímur Thorsteinsson |
|||||||