| Sigurður Þórðarson | ||||||||
![]() |
||||||||
| Sigurður Þórðarson fæddist á Gerðhömrum í Dýrafirði 1895. Hann hóf nám í píanóleik hjá Önnu Pétursson 1911 og síðar í fiðluleik hjá Oscari Johansen. Hann lauk prófi frá Verslunar-skóla Ísland 1915 og vann við skrifstofustörf næsta árið. Haustið 1916 hélt hann til Leipzig og var við tónlistarnám næstu tvö árin. Sigurður vann við skrifstofustörf fram til 1930 að hann varð fyrsti skrifstofustjóri Ríkisútvarpsins þar sem hann starfaði til 1965. Hann stundaði söngkennslu allt frá 1919 og fór fljótlega að stjórna kórum. Hann var einn af stofnendum Karlakórs Reykjavíkur og aðalstjórnandi hans lengi síðan. Sigurður samdi ýmis konar tónlist, mest þó einsöngs- og kórlög. Sigurður lést 1968. |
||||||||
|
|
||||||||
| Ave María / messutexti Álfasveinninn / Guðmundur G. Hagalín (þjóðvísa) Dögun (Með röðli dagsins...) / Davíð Stefánsson Ég blessa mína... / Dagfinnur Sveinbjörnsson Ég fann þig áður fyrri hér / Dagf. Sveinbjörnsson Föðurtún / Davíð Stefánsson Gleði mér vekur... / Dagf. Sveinbjörnsson Gratias agimus timbi / messutexti Harmljóð / Stefán frá Hvítadal Haustnótt / Tómas Guðmundsson Hlíðin / Gestur Hvítu skipin / Davíð Stefánsson Kjarnakyn / Davíð Stefánsson Kom ég upp í Kvíslarskarð / þjóðvísa Kvæðið um fuglana / Davíð Stefánsson Ljóð (Hver lítil stjarna...) / Davíð Stefánsson Lævís brögð / Dagfinnur Sveinbjörnsson |
Mamma (ég er sjúkur og sár) / Stefán frá Hvítadal Mig heilla fjarlæg fjöll / Dagf. Sveinbjörnsson Norður / Þóroddur Guðmundsson Nú gyllir ylrík sólin sæ / Dagf. Sveinbjörnsson Nú í háum hamrasal / Dagf. Sveinbjörnsson Óm ég heyrði í hamrinum / Dagf.Sveinbjörnss. Páskaliljur / Richard Beck Sáuð þið hana systur mína / Jón Thoroddsen Sjá dagar koma / Davíð Stefánsson Sjódraugar / Davíð Stefánsson Sláttuvísur / Jónas Hallgrímsson Stjarna stjörnum fegri / Magnús Gíslason Vögguljóð (Sofðu, sofðu...) / Benedikt Þ. Gröndal Vögguljóð Rúnu / Guðrún Jóhannsdóttir Vögguvísa (Sjá blöðum...) / Valdimar V. Snævarr Þú situr sem glóey í garði / Dag. Sveinbjörnsson Þú svífur fráls / Eyjólfur Björnsson |
|||||||