Sigursveinn D. Kristinsson
Sigursveinn D. Kristinsson fæddist í Skagafirði 1911 og ólst upp í Ólafsfirði. Hann fékk mænuveiki 1924. Hann nam tréskurð og handíðar en 1936-38 lærði hann á fiðlu hjá Theodóri Árnasyni. Sigursveinn stundaði nám við Tónlistarskólann í Reykjavík 1946-50, í Kaupmannahöfn 1950-51 og síðan aftur við Tónlistarskólann í Reykjavík við nám í tónsmíðum og lauk þaðan burtfararprófi 1954. Hann var við framhaldsnám í Berlín í tónsmíðum og kórstjórn 1956-57. Hann hóf tónlistarkennslu á Siglufirði 1957 og stofnaði Tónskóla Siglufjarðar nokkru síðar. 1964 stofnaði hann Tónskóla Sigursveins og stýrði honum til 1984. Sigursveinn hefur stofnað og stjórnað lúðrasveitum og kórum. Meðal tónverka Sigursveins eru mörg sönglög, kantötur fyrir Tónskólann, einnig verk fyrir orgel, einleikshljóðfæri og hljómsveitarverk. Sigursveinn var frumkvöðull að stofnun Sjálfs-bjargarfélaganna hér á landi og fyrsti formaður Sjálfsbjargar í Reykjavík. Hann lést 1990.

Amma raular í rökkrinu / Jóhannes úr Kötlum
Fossaniður / Þorsteinn Erlingsson
Fylgd / Guðmundur Böðvarsson
Hvað mun dreyma / Jakobína Sigurðardóttir
Höndin / Kristján frá Djúpalæk
Lágnætti / Þorsteinn Erlingsson
Litla skáld / Þorsteinn Erlingsson
Það sem enginn veit / Þórbergur Þórðarson
Þegar flýgur / Þorsteinn Erlingsson