Sigvaldi S. Kaldalóns
Sigvaldi S. Kaldalóns var fæddur í Reykjavík 13. janúar 1881. Bróðir Sigvalda var Eggert Stefánsson söngvari. Sigvaldi lauk stúdentsprófi 1902 og embættisprófi við læknaskólann í Reykjavík 1908. Næsta ár starfaði hann á sjúkrahúsum í Danmörku en hóf síðan læknisstörf hér heima og var héraðslæknir í Nauteyrarhéraði við Ísafjarðardjúp 1910-22, en varð þá að láta af embætti sökum vanheilsu. Síðar var hann héraðslæknir í Flatey á Breiðafirði um skeið og loks í Keflavíkurhéraði 1929-41, er honum var veitt lausn frá embætti með fullum launum. Hann hafði verið búsettur í Grindavík og hélt þar áfram læknisstörfum eftir þetta meðan honum entist heilsa. Eftir Sigvalda liggur mikill fjöldi verka, mest sönglög en einnig nokkur hljóðfæralög. Hann hafði ríka lagræna gáfu sem ef til vill nýtur sín best í einsöngslögunum. Hin fyrstu þeirra voru gefin út 1916. Á síðustu áratugum hefur Kaldalónsútgáfan staðið að heildarútgáfu á verkum tónskáldsins. Hann lést í Reykjavík 1946.

Á Sprengisandi / Grímur Thomsen
Alfaðir ræður / Sigurður Eggerz
Ásareiðin / Grímur Thomsen
Ástaróður til frjómoldarinnar / Jóhannes úr Kötlum
Ave María
(úr Dansinum í Hruna) / Indriði Einarsson
Aðfangadagskvöld jóla / Stefán frá Hvítadal
Barnabæn
(Ó faðir gjör mig...) / Matthías Jochumsson
Barnið /
Betlikerlingin / Gestur Pálsson
Bíum, bíum bamba / Þjóðvísa
Brúnaljós þín blíðu / Guðrún Tómasd.
(Arnrún frá Felli)
Brúðarljósin (a)
(Kveikið þrælar) / Davíð Stefánsson
Brúðarljósin (b)
(Berið þernur) / Davíð Stefánsson
Den hvide pige / Friðrik Á. Brekkan
Draumur Bergljótar / Hulda
Draumur hjarðsveinsins / Steingrímur Thorsteinsson
Ég bið að heilsa / Jónas Hallgrímsson
Ég gleymi því aldrei / Halla Eyjólfsdóttir
Ég lít í anda liðna tíð / Halla Eyjólfsdóttir
Ég syng um þig / Kjartan Ólafsson
Eins og ljóssins... / Matthías Jochumsson
Erla / Stefán frá Hvítadal
Fjallið eina / Grétar Fells
Frændi, þegar fiðlan þegir / Halldór Laxness
Glitrandi sóley / Anna Björnsson
Grindvíkingur / Örn Arnarson
Hamraborgin / Davíð Stefánsson
Heimför / Jónas Stefánsson frá Kaldbak
Heimir / Grímur Thomsen
Heiðin há / Grétar Fells
Hin silfurbúnu fley / Einar M. Jónsson
Hinsta kveðjan / Halla Eyjólfsdóttir
Hjúkrunarkonan / Pétur Sigurðsson
Hófatak / Guðfinna Jónsdóttir frá Hömrum
Hrauntöfrar / Grétar Fells
Hreiðrið mitt / Þorsteinn Erlingsson
Huldur / Grímur Thomsen
Hún kyssti mig / Stefán frá Hvítadal
Hvað er hel? / Matthías Jochumsson
Hvíslingar / Halla Eyjólfsdóttir
Í Betlehem / Gömul jólvísa
Í Svanahlíð / Grímur Thomsen
Íslenskt vögguljóð á Hörpu / Halldór Kiljan Laxness
Jólin koma / Sigurjón Guðjónsson frá Vatnsdal
Kalt er í klettaskoru / Hans klaufi
Kata litla í Koti / Gestur
Katarína
(Komið allir Kaprí sveinar) / Davíð Stefánsson
Kjarval / Þorsteinn Gíslason
Klukkan ómar / Lárus Þórðarson
Klukknahljóð / Grímur Thomsen
Kossavísur / Jónas Hallgrímsson
Kveldriður / Grímur Thomsen
Land hamingjunnar / Friðrik Á. Brekkan
Leit ég í lundinum / Bjarni Thorarensen
Leitin / Halla Eyjólfsdóttir
Leiðsla / Þorsteinn Gíslason
Ljúflingurinn litli / Guðrún Tómasdóttir (Arnrún frá Felli)
Lofið þreyttum að sofa / Davíð Stefánsson
Lögin fögru / Halla Eyjólfsdóttir
Mamma ætlar að sofna / Davíð Stefánsson
Máninn / Halla Eyjólfsdóttir
Maríubæn / Halla Eyjólfsdóttir
Með sólkinsfána úr suðurátt / Jakob Thorarensen
Með sólskinsfána / Jakob Thorarensen
Minning
(Að horfa inn í augu þín) / Hreiðar E. Geirdal
Næturóður / Friðrik Á. Brekkan
Ó, blessuð vertu sumarsól / Páll Ólafsson
Ó, komdu heim... / Sigurður Guðjónsson
Regn / Friðrik Á. Brekkan / Jochum Eggertsson þ.
Regn um nótt / Friðrik Á. Brekkan
Samtal fuglanna / Halla Eyjólfsdóttir
Serenaði til Reykjavíkur / Tómas Snorrason
Skógarilmur / Einar Benediktsson
Skógurinn vænn... / Indriði Einarsson
Snær / Jón úr Vör
Sofðu sofðu góði / Guðmundur Guðmundsson
Sofðu unga ástin mín / Jóhann Sigurjónsson
Sólardagur / Jocum Eggertsson
Sólarlag / Páll V. Kolka
Sólarsýn / Grétar Fells
Sommerlied... / Alexander Jóhannesson
Söngur Hrafns / Hulda
Stormar / Steinn Stefánsson
Suðurnesjamenn / Ólína Andrésdóttir
Svanasöngur á heiði / Steingrímur Thorsteinsson
Svanur / Einar Benediktsson
Svanurinn minn syngur / Halla Eyjólfsdóttir
Svarkurinn / Grímur Thomsen
Sveinkadans / Gestur
Syngdu mér / Magnús Ásgeirsson þýddi
Til næturinnar / Ólína Andrésdóttir
Una / Davíð Stefánsson
Útsjón / Jochum Eggertsson
Vald / Halla Eyjólfsdóttir
Við Kaldalón / Lárus Þórðarson
Við sundið / Sigurður Sigurðsson frá Arnarholti
Vöggubarnsins mál / Guðfinna Jónsdóttir
Vögguljóð
(Ég skal vaka) / Halldór Laxnes
Vor
(Ég heyri þegar grasið grær) / Jón úr Vör
Vor
(Sunnanvindur sumarhlýr) / Þorsteinn Gíslason
Vorar samt / Jón Magnússon
Vorsins friður, vorsins þrá / Guð. Guðmundsson
Vorvindur / Ragnar Ásgeirsson
Vorvísur
(Ó, velkomnir fuglar) / Halla Eyjólfsdóttir
Vorvísur
(Vorsins dís er létt í lund) / Guðmundur Geirdal
Það birtir / Margrét Jónsdóttir
Þótt þú langförull legðir / Stephan G. Stephansson
Þú eina hjartans yndið mitt / Guðmundur Geirdal
Þú réttir mér ilmvönd / Jakobína Johnson
Æska, hve lund þín er létt / Lárus Þórðarson
Ljóð án orða / enginn (C.B. útsetti)